Guðrún Drífa

18.10.2007 10:40:19 / Guðrún Drífa

Gwen Stefani

Stutt blogg.....Ég og Jóhann ákváðum bara að skella okkur svona last minute til Köben um helgina. Ferðin var meiriháttar og það sem meira er að ég komst á tónleika með Gwen Stefani!!! Geggjaðir tónleikar og pant verða eins og hún eftir 11 ár :lol:

...og já svo var verslað "smá", ætlaði að fara að kíkja á jólagjafir og svona en endaði með fullt handa mér og enga jólagjöf, se la vi :haha:

leiter... þarf að vinna upp smá lærdóm :haha:

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 17:23:20 / Guðrún Drífa

Jafnvel lokablogg!!!

Okei, ég er með svona ákveðin "bloggrúnt" sem ég fer nokkrum sinnum á dag, vandamálið er bara að það eru mjög margir á þessum svokallaða bloggrúnti mínum hættir að blogga, og ég alltaf jafn pirruð því þetta er ágætis afsökun á að vera ekki að læra en á sama tíma er ég ekki að nenna að blogga þannig að ég er að pæla í koma mér í hóp þeirra sem eru hættir að blogga. :lol:

Af skólanum að frétta er að ég er að drukkna í verkefnum....kennarinn í tölfræði var einmitt að kynna verkefnið sem við eigum að skila í morgun og ég klóraði mér bara í hausnum, veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja. En þetta felst í að skilja og túlka niðurstöður úr rannsóknum, held það allavega ;)

Og svo er Grey´s Anatomy byrjað aftur og Private Practice sem er líka algjör snilld... já allir uppáhaldsþættirnir mínir að byrja aftur og ég get tekið gleðina mína á ný. Já ég viðurkenni það að ég elska að horfa á sjónvarp og get horft á sömu myndina aftur og aftur...já fyrir utan kannski nokkrar, t.d. eins og Angel Eyes. Hef reyndar verið slök að velja myndir uppá síðkastið en leiðinlegasta mynd sem ég hef farið í bíó er myndin Evan Almighty, fór með Önnu og Bjarný (Anna valdi hana sko, já Anna það þýðir ekkert að þræta fyrir það;) jemin hún var mjög slök.

Okkur Valsstelpum hefur gengið fínt í deildinni hingað til. Unnum mjög fínan sigur á móti Gróttu síðasta laugardag og fögnuðum við frekar mikið eftir leikinn enda byrjuðum við alveg herfilega á móti þeim en náðum að rífa okkur upp og vinna, alltaf gaman að því :haha: Við erum svo búnar að fara á tvær "Valda" æfingar í vikunni og þær eru ekkert spes. 3-2-1 sprettirnir eða 17-13 sprettirnir eru ekki í neinu uppáhaldi hehe, enda þegar við vorum að spila á æfingu á miðvikudaginn að þá var eins og verið væri að sýna þetta hægt, fáum allavega frí í dag og á morgun :haha:

Svo varð ég 27 ára á sunnudaginn, hef alveg átt betri daga verð ég að viðurkenna en ég held að mér hafi allavega liðið betur en Dagný :S

Kellan er ein heima þessa daganna, Jóhann ákvað að skreppa til Kína í nokkra daga, mjög eðlilegt bara. Borgin sem hann er í er víst mjög Vestræn og merkjavörur alveg jafn dýrar þar og hér heima, damn var að vonast eftir góðum kaupum í þessari ferð hehe...

og að lokum vil ég óska Þórdísi og Ægi innilega til hamingju með nýja meðliminn í fjölskylduna og einni Ágústu og Birni, við sem erum í voginni erum mjög skemmtilegt fólk :haha:

Guðrún out.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 11:56:05 / Guðrún Drífa

Umferðarteppa!!!

Vonandi fer að styttast í það að fólk fari að hætta að mæta í tíma!!!! Var í 50 mínútur á leiðinni í skólann í morgun sem tekur mig venjulega svona 10-12 mín. Ætlaði að vera frekar sniðug og prófa aðra leið núna, var alveg viss um að hún væri betri núna þó svo að hún væri aðeins lengri...hélt ég hefði gert rosa gott mót til að byrja með þar sem hin röðin byrjaði á hringtorginu hérna í Salahverfinu en ég var fljót að átta mig á því að þetta hefði nú ekki verið það gáfulegasta sem ég hef gert. Veit ekki hvað ég sat lengi föst á sama stað og ég fór sjaldan yfir 20 km hraða. Allavega note to myself: Ekki fara miklubraut aftur!

Koma svo...hættið að mæta í tíma :-)

....svo má rigningin alveg fara að slaka á!

Leiter...


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 17:45:20 / Guðrún Drífa

Blow out

Okei hvað er Blow out?? Hef aldrei horft á þennan þátt en rakst á hann þegar ég var að flakka á milli stöðva og jemin!!! Frekar glataður gaur en að hans mati er hann alveg frábær og geðveikt klár. Og þetta er þáttaröð nr. 3!!!!

Helgin búin að vera róleg og fín. Jóhann fór reyndar til Madrid að "keppa" í fótbolta með Kaupþing þannig að kellan er búin að vera home alone alla helgina. Við vorum meira að segja í þriggja daga helgarfríi frá handboltanum.

Skólinn er byrjaður á fullu og það verður nóg að gera hjá mér í vetur. Eitt fagið sem ég tek í ár heitir utanríkisverslun og fer öll kennsla fram á ensku og ekki nóg með það heldur þarf maður að tjá sig ansi oft og það á ensku. Já ég er ekki alveg mikið fyrir public speaking og það á ensku. Það er nú ekki mætingarskylda í tíma en það er samt 10% af lokaeinkunninni þannig að maður þarf að mæta ef maður vill ekki missa það... það er nú samt spurning hvort það sé ekki bara þess virði :haha: En ég sem hélt að tjáningartímum mínum væri lokið eftir að ég útskrifaðist úr FB. Það var nú meiri píningin að þurfa að fara uppí púlt og tala um tvinna í nokkrar mínútur!!!!!

Fyrsti leikur okkar valsstúlkna er svo á fimmtudaginn við Akureyri...held klukkan 20 í nýju Vodafonehöllinni...allir að mæta :-)

luv.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 23:56:25 / Guðrún Drífa

..............

Jæja best að henda inn nokkrum línum. Þjóðhátið klikkaði ekki og var laugardagskvöldið sérstaklega skemmtilegt :haha: Ég og Dagný urðum reyndar fyrir svolitlu sjokki á föstudeginum, allt í einu fannst okkur við pínu gamlar og vorum þarna að á stóra sviðinu með Rakel. Þá kom ein stelpa upp að okkur og sagði að mamma sín hefði verið að æfa með okkur handbolta... OMG maður var bara á því að panta pláss inná Grund!!!! en okkur til varnar þá var mamma hennar 45 ára þegar hún var að æfa með okkur og við 17 ára :D en ég hélt að Rakel myndi andast úr hlátri......allavega ekki gaman að lenda í svona.

Helgina eftir þjóðhátíð fórum við Valsstelpur í æfingaferð til Noregs. Fyrsti leikur var við Larvik og hefðum við alveg eins getað sleppt því að mæta í leikinn, úrslitin hefðu orðið hagstæðari :$ Þær eru náttúrlega frekar góðar! Töpuðum svo fyrir Fjellhammer en áttum nú samt að vinna hann en unnum svo næstu þrjá leiki. Mjög fín ferð í alla staði.

Nú um helgina var svo verið að vígja nýja Valsheimilið og þurfti maður að fagna því um kvöldið. Já kannski aðeins of mikið :haha: Ég áttaði mig allavega á því að maður á kannski bara að halda sig við eina tegund, kannski tvær en ekki fimm!!! hehe.

Reykjavík Open er svo um næstu helgi og verður það ekki eins og á að venjast. Aðeins fimm lið skráðu sig þannig að það spila bara allir við alla og sigurvegarinn verður Reykjavíkurmeistari... það verður sem sagt engin úrslitaleikur eins og venjulega er!!

Skólinn er svo að byrja á mánudaginn, hætti að hjá kaupþing í síðustu viku, ákvað að taka mér smá frí 8|

Við valsstelpur erum einnig búnar að opna nýja bloggsíðu www.valspiur.bloggar.is

leiter....


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 11:49:35 / Guðrún Drífa

Þjóðhátíð nr. 6

Haldiði að kellan sé ekki á leiðinni á þjóðhátíð!!! bendir allt til að manni eigi eftir að rigna niður :S En vonandi verður þetta betra en 2002, það var náttúrlega bara very bad. Mjög minnistætt þegar ég var að reyna að  syngja með Árna í brekkusöngnum að þá kom bara svartur ruslapoki og flaug beint framan í mig...já já I got the point, Guðrún á ekki að syngja :-) Svo veit maður ekkert hvort að maður komist til Eyja þar sem ég á flug og útlitið ekkert spes.

Svona til að koma mér í þjóðhátíðargírinn þá ákvað ég nú að hlusta á nýja þjóðhátíðarlagið og jemin, ég er ekki frá því að ég væri nærri því búin að afpanta ferðina, very bad lag enda miðar maður alltaf við þjóðhátíðina árið 2001, hún var náttúrlega bara algjör snilld.

Við Valsstúlkur erum byrjaðar að æfa á fullu aftur, það er svo sem ágætt en samt mjög gott að fá smá frí :) Svo förum við að byrja að geta æft í nýju höllinni okkar. Þetta verður mjög flott... eins og Begga sagði að þá gæti maður bara flutt þangað, það verður gjörsamlega allt þarna hehe :haha:

Annars er ég ekki búin að gera mikið í sumar nema að vinna.... ekki mikið um ferðalög. Er búin að fara einu sinni norður á Akureyri í brúðkaup, er ekki einu sinni búin að kíkja í sveitina og það er náttúrlega ekki gott þar sem það er alltaf mjög gaman að fara í sveitasæluna og hlaða batteríin.

Skólin byrjar aftur 3. september og er ég nú bara farin að hlakka til að komast í skólalífið aftur... mjög þægilegt. Reyndar hefði ég verið til í aðeins öðruvísi stundatöflu en þetta er svo sem allt í lagi.

out...


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 10:51:05 / Guðrún Drífa

Reyklausir staðir..já takk!!!

Best að henda inn nokkrum línum...annars er ég ekkert að nenna að blogga mikið yfir sumartímann... ég er nefnilega svo dugleg á veturnar :)

Hélt smá partý á laugardaginn...eða réttara sagt þá bauð Dagný í smá partý til mín hehe... en það var mjög gaman..græjurnar svoldið mikið tjúnaðar... efast um að nágrannar mínir hafi verið rosa ánægðir... og ekki bætti það að við sungum, "öskruðum" með öllum lögum hehe

Fórum svo í limbó keppni og þar stóð Dagný upp sem sigurvegari... ég þurfti sko að halda á prikinu, þess vegna vann ég ekki... hef alltaf verið þekkt fyrir liðleika minn :haha:

Svo þegar klukkan var að ganga þrjú og við líklega búin að æra alla sem voru í grennd við okkur að þá var haldið af stað niður í bæ og varð Oliver fyrir valinu, SURPRISE!!!! En vá hvað það er allt annað að djamma án þess að kafna úr reyk...allt annað líf sko. En það tók dágóðan tíma að koma sér heim því leigubílaröðin var frekar löööööönnnnggggg. En að lokum fengum við Óla "vatnsbera" til að koma og skutla okkur heim og ég verð að segja að ég held að ég og Elfa hugsum okkur tvisvar um áður en við förum uppí þennan bíl aftur :D

....svo þegar ég kom heim þá blasti ekkert spes sjón við mér...íbúðin var í rúst hehe... en kellan svaf í þrjá tíma og vaknaði og fór að taka til :)

leiter...


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 22:47:32 / Guðrún Drífa

You raise me up!!!!

vááááá... var að koma af tónleikunum með Josh Groban og hann stóð undir öllum mínum væntingum og meira en það... Jemin hvað hann var góður!!!!! langar svooooo aftur á morgun!!!

Svo vil ég óska Guðbjörgu minni innilega til hamingju með afmælið...

 luv...


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 17:49:15 / Guðrún Drífa

Eiki Hauks

Jæja komið að endasprettinum.. síðasta prófið á laugardaginn. Það er nú reyndar ekkert auðvelt próf en það er í rekstrarhagfræðinni..úff púff.. frekar erfitt að halda einbeitingunni þessa daganna.

Svo er það bara eurovision og kosningar... Aldrei að vita nema Eiki hauks komist áfram í kvöld.. er nú samt ekkert voða bjartsýn á það samt.

Ég talaði um í síðustu færslu að ég væri komin í handboltafrí... það stóð nú stutt yfir hehehe..byrjum að æfa á þriðjudaginn aftur!!!! :lol:

Vil enda á því að óska afmælisbörnum dagsins innilega til hamingju með daginn, Dagný, Drífa, Þórdís og Óskar :haha:

Jæja ætla að reyna að komast í gegnum eitt dæmi áður en eurovision byrjar....

...leiter..


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 14:45:00 / Guðrún Drífa

Tvö búin...

Tvö búin, þrjú eftir!!!!

já já ekki svo mikið eftir.. vildi samt að þetta væri búið :S finnst ég vera búin að læra í marga mánuði :S

Var að hugsa áðan hvað ég vildi að það væri eins gott veður hér og fyrir norðan.. Hvað er það?? að vera í prófum og langa í gott veður.. nei ég held að það sé betra að hafa veðrið bara sæmilegt á meðan maður þarf að hanga yfir þessum bókum.. sólin má láta sjá sig 12. maí.. ég ímynda mér þann dag að það verði alveg crazy gott veður...próflokadagur hjá mér, kosningar, eurovision og alles þennan dag þannig að veðrið verður að vera gott!!! En ætli þetta endi ekki á að verða svipað og þegar ég kláraði prófin síðast.... Var massa fegin þegar ég labbaði út úr síðasta prófinu en nei nei..mætti mér bara crazy veður og þegar ég opnaði hurðina þá bara fuku gleraugun af mér og inná eitthvað byggingarsvæði hjá Háskólanum og ég að skríða og reyna að leita af gleraugunum..já trúið mér, það hvarflaði að mér að skilja þau bara eftir!!!!

Svo er maður bara komin í "handboltafrí". Æfum reyndar nokkrum sinnum í viku núna.. fáum líklega að vita hvernig framhaldið verður í vikunni.

Jæja best að halda áfram með þessa ask.... tölfræði!!!

leiter..


» 11 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 10:48:02 / Guðrún Drífa

Læra læra læra læra........

Prófin að byrja sem þýðir að það verður örugglega bloggað á hverjum degi :) Fyrsta prófið er á mánudaginn í reikningshaldi, mjög spennandi.....

Svo kviknaði bara í "miðbænum" í gær. Frekar sorglegt verð ég nú bara að segja..... mjög gömul hús og held ég að annað þeirra hafi meira að segja verið friðað.

Síðasti leikurinn í deildinni á laugardaginn og það á móti mínum gömlu félögum í FH. Við Valsstúlkur erum búnar að vera á sprettæfingum í rúmar þrjár vikur núna held ég en sem betur fer er frí í dag...mín er jú að verða svoldið gömul og líkaminn höndlar þetta ekki alveg hehe, tala eins og ég sé orðin áttræð :haha:

En mikið leikjaprógramm framundan ásamt því að vera í prófum, úff púff... leikur á laugardaginn, próf á mánudaginn, leikur á þriðjudaginn, leikur á fimmtudaginn, próf á föstudaginn (eiginlega tvö próf) og ef það fer í þrjá leiki þá verður leikið á laugardeginum líka.... og svo aftur í næstu viku ef við komumst áfram sem ég vona svooooo innilega!!! Þannig að það verður nóg að gera hjá minni...... svo eru foreldrar mínir líka að fara að flytja í næstu viku og get ég nú ekki hjálpað mikið til :cry: en ég sendi Jóhann sem fulltrúa minn og hann vinnur bara á tvöföldum hraða hehe.

jæja best að fá sér kaffi til að halda sér við efnið...leiter!!!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 21:15:20 / Guðrún Drífa

Josh Groban

Jæja, komið að bloggi mánaðarins. Páskarnir að verða búnir og maður verður sko að fara í massa átak eftir allt þetta át!!!! Svo styttist frekar mikið í prófin en prófaljótan er þegar farin að gera vart við sig.... byrja sem sagt 23. apríl og fer í 5 próf og er síðasta prófið mitt er 12. maí. Það er víst nóg að gera þann dag því það eru einmitt kosningar og Eurovision en ég reikna nú samt ekki með að við verðum með það kvöld, eigum örugglega aldrei eftir að komast uppúr þessari undankeppni.

Vá ég er svoooo ánægð, ég fékk miða á Josh Groban... Reyndi að fá miða á fyrstu tónleikanna en miðarnir seldust uppá no time og ég sat eftir með sárt ennið og grét mig í svefn öll kvöld...já nei nei kannski ekki svo slæmt en ég var ekkert smá ánægð með að það voru settir á aukatónleikar og ég fékk miða :haha:

En ég gerði nú ekki mikið um páskanna annað en að læra og borða og jú æfa... fórum meðal annars í spinning á miðvikudaginn og í minningunni var spinning eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert en þessi tími kom mér bara á óvart, mjög góð tónlist og tekur maður vel á því þannig að þetta var ekki það leiðinlegt...kannski að maður skelli sér bara í spinning þegar handboltatímabilinu líkur.

jæja ætla að fara að horfa á american idol...later...


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 12:41:51 / Guðrún Drífa

Hóst

Vá hvað ég er ekki að nenna að blogga enda hef ég ekki frá neinu skemmtilegu að segja held ég... en mér finnst pressan orðin of mikil því ákvað ég að láta undan :)

Fór á árshátíð Kaupþings um síðustu helgi og var alveg meiriháttar gaman á henni. Aldrei leiðinlegt þegar Páll Óskar er að þeyta skífum. Svo voru náttúrlega öll helstu Eurovision atriðin tekin. Meira að segja Olson bræður mættu á svæðið.....

Við Valsstúlkur höfum náð að skíta uppá bak í síðustu leikjum og þar af leiðandi búnar að missa af Íslandsmeistaratitlinum :^)

Er komin með kvef enn og aftur... Hvað er málið!! ef kuldinn lækkar um eina gráðu þá er ég farin að hnerra, hósta og komin með stíflað nef :cry:

Einar meiddist aftur á laugardaginn... í sínum fyrsta leik eftir putta meiðslin.... Hann lennti eitthvað illa og kom svo í ljós að hann er með brjósklos og þarf að fara í aðgerð í dag....verður líklega í frá í um 6 vikur....

Guðbjörg og félagar í FOX náðu að tryggja sig í leaguna á næsta ári... Til lukku með það kella.... en Gixie búin að brillera á þessu tímabili.

Styttist óðum í prófin hjá mér...Byrja 23. apríl og er búin 12. maí.... líf og fjör...

jæja got to go... þetta var allavega eitthvað...ekkert neitt rosa málefnalegt samt :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 11:11:02 / Guðrún Drífa

Helsta....

Það sem er helst að frétta.....

Gústi þjálfari varð þrítugur á mánudaginn. Í tilefni af því fékk Hafrún Geir Ólafs til að koma og syngja fyrir Gústa...múhahah bara fyndið. Við byrjuðum bara æfinguna og svo mætti Geir á svæðið og tók lagið fyrir Gústa... úff maður fékk oft frekar mikinn kjánahroll en Gústi sat þarna einn og yfirgefinn og Geir stóð á móti honum og söng fyrir hann :haha:

Náði að afreka það að snúa mig á æfingu í gær...en ég verð vonandi ready til að æfa á morgun...maður fær sér bara nokkrar voltarin hehe :)

Bikarleikur í kvöld, Haukar - Valur.... kellan verður bara uppí stúku.. úff það er held ég svona þúsund sinnum erfiðara...væri alveg til í að spila þennan leik..en se la vi..... verð bara crazy uppí pöllum í staðinn :haha:

 Jæja verð að hætta, er að fara í próf í rekstrarhagfræði :S líf og fjör......


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 21:37:43 / Guðrún Drífa

Long time.....

Jiiii kannski kominn tími á smá blogg hjá kellu :o Hef nú samt ekkert að segja sko, vildi bara láta vita að við Valsstelpur erum komnar með aðra bloggsíðu. Kata tók sig til og bjó til eina slíka fyrir okkur, nú verður bara einhver að taka það að sér að blogga :haha:

Svo ef einhverjum vantar árskort í sporthúsið eða klósettpappír/eldhúsrúllur þá erum við Valsstelpur að selja slíkt 8|

Annars fór ég á HM í þýskalandi og það var mjööööggg gaman, sé ekki eftir að hafa skellt mér út. Eftir Frakka leikinn sagði ég bara við Jóhann að við værum á leiðinni út og hana nú, já já hann þorði náttúrlega ekki öðru en að hlýða manni :lol


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Áhugaverðar síður